top of page
_AA04071_edited.jpg

Einstök brúðkaupsboðskort
sem þú munt varðveita!

Vilt þú ógleymanleg boðskort sem segja sögu þína og fá alla gesti til að

missa sig úr tilhlökkun og gleði yfir deginum ykkar? 

KÍKTU NIÐUR

Ertu búin að leita út um allt en finnur ekki boðskort sem kalla til þín og segja sögu þína? Ég veit alveg hvernig þér líður og þess vegna er ég hér, til að hjálpa þér að skapa þitt eigið boðskort sem er einstakt, glæsileg og mun fá hvern einasta gest til að missa sig af spennu yfir deginum ykkar.

Andartakið sérhæfir sig í hágæða brúðkaupsbréfsefni og var stofnað með það markmið að bjóða uppá eitthvað nýtt, eitthvað sem er ekki til hér á landi nú þegar og bjóða uppá framúrkarandi upplifun og úrval.
Við erum fyrir brúðhjónin sem setja mikið virði í fagurleika og vilja að bréfsefnið á brúðkaupsdegi þeirra sé endurspeglun á þeim og eitthvað sem engin hefur séð áður, elskar að pæla í öllum smáatriðunum og vill hafa hlutina uppá tíu. Við erum hér til að skapa meira en bara fallegan pappír heldur bréfsefni sem segir sögu ykkar og skilur eftir sig langvarandi minningar í huga allra.

Okkar trú er að þú ættir ekki að þurfa að stressa þig yfir öllum skrefunum sem koma að því að hanna boðskort, eins og að velja rétta pappírinn, litinn, orðalag og að setja það saman. Það getur farið ótrúlega mikill tími í þetta allt og við viljum hjálpa þér að gera minna og njóta þess að plana rest, enda nóg annað að velja og gera. Hér getur þú fengið allt bréfsefni fyrir brúðkaupsdaginn þinn í sama stíl til að tryggja heilstætt útlit. Það er ekkert sem við getum ekki gert svo endilega hafðu samband ef þú ert með "klikkaða" hugmynd.

_AA04090.jpg

Sérsniðin  hönnun

alina0310.jpg

Tilbúin
hönnun

Kemur fljótlega
MichalinaOkreglickaBohoshoot216.JPG

Viðburðar

bréfsefni

Takk fyrir að gera brúðkaupið okkar ógleymanlegt bæði fyrir okkur og gestina okkar!

Boðskortin sem Alina sérhannaði fyrir brúðkaupið okkar sumarið 2021 voru ólýsanlega falleg og viðbrögðin frá gestunum okkar létu ekki á sér standa - boðskortin urðu að upplifun sem setti tóninn fyrir hátíðina sem koma skyldi. Það er ómetanleg tilfinning að koma inn á heimili ættingja og vina og sjá þar boðskortin okkar enn, mörgum mánuðum eftir að þau voru send út, sum jafnvel innrömmuð. Í hvert sinn sem við horfum á kortin fáum við fiðrildi í magann og minnumst undirbúningstíma brúðkaupsins okkar 

GUÐRÚN & HAUKUR
alina0947.jpg

HÆ, ALÍNA HEITI ÉG

Ég geri einstakt bréfsefni og sýn þína að veruleika.

Það var aðeins örfáum árum síðan (2019) er ég giftist yndislega manninum mínum og eftir að brúðkaupinu lauk vildi ég alls ekki sleppa þessum iðnaði úr lífi mínu og eitthvað kviknaði innra með mér. Ári seinna var mér sagt upp úr iðnaði sem ég hafði engan áhuga á að vera í og mér fannst ekkert meira spennandi en að stofna  fyrirtæki sem sérhæfir sig í brúðkaupsbréfsefni og hjálpað pörum að deila ást sinni og sögu í gegnum pappír.

„Það sama og hinir“ er ekki í orðaforða mínum. Hvort sem við erum að byrja frá grunni eða frá eitt af tilbúnu hönnunum okkar, þá er makmið mitt að gera bréfsefnið ykkar sannarlega eins einstakt og þið - og gera líf ykkar muuuun minna stressandi í leiðinni.

Ég bý í Reykjavik með manninum mínum og megin markmið mitt frá upphafi er að skapa eitthvað nýtt og einstakt á þessum markaði og vinna með yndislegu fólki eins og þér.

Flowers-03.png
bottom of page